Fréttir

Hraðaksturinn kostaði 130 þúsund
Föstudagur 16. mars 2018 kl. 10:17

Hraðaksturinn kostaði 130 þúsund

Nokkrir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í  umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Sá sem hraðast ók var ökumaður um tvítugt sem mældist á 146 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Ökumannsins unga bíður 130.000 króna sekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og  þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af fjórum bifreiðum vegna vanrækslu varðandi skoðun eða tryggingar og einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn