Hótel Keflavík hefur safnað 5,3 milljónum króna fyrir Grindvíkinga
Söfnun sem Hótel Keflavík hefur staðið fyrir síðustu vikur og er ætlað að styðja við samfélag Grindvíkinga gengur vel. Steinþór Jónsson hótelstjóri afhenti í dag Kjartani Friðrik Adolfssyni, aðalbókara Grindavíkur, rétt tæpar 5,3 milljónir króna eða nákvæmlega 5.294.694 kr.
„Við viljum sýna Grindvíkingum að við stöndum með þeim í þessum hremmingum og við ætlum að vera til staðar fyrir þau,“ sagði Steinþór í samtali við Víkurfréttir við þetta tækifæri. Söfnunin mun halda áfram.
„Þessi erfiða staða er enn til staðar en við ákváðum að afhenda þá upphæð sem við höfum þegar safnað og reyna að koma henni til þeirra sem nefnd frá bæjarráði Grindavíkur telur nýtast best.
Söfnunin heldur samt áfram og þessi afhending er því bæði áminning um að við flest getum gert betur og margt smátt gerir eitt stórt.“
Hótel Keflavík lagði fram fyrstu milljónina í söfnunina og hvatti önnur fyrirtæki og einstaklinga að taka þátt. Söfnunarfé rennur allt og óskert til Grindavíkur og er fyrir samfélagið sjálft og mun nýtast sem stuðningur fyrir íbúa, félagasamtök og fleira. Bæjarráð Grindavíkur mun á seinni stigum skipa hóp sem sér um að úthluta þeim fjármunum sem safnast.
Kjartan tók við söfnunarfénu fyrir hönd Grindvíkinga.
„Þessi söfnun er mjög þakkarvert framtak og mun án efa koma sér vel. Síðast í dag fékk ég símtal frá Vestmannaeyjum til fá söfnunarreikningsnúmerið til leggja þessu góða verkefni lið,“ sagir Kjartan.
„Þegar maður sjálfur lendir í svona hremmingum er gott að finna sterkan stuðning frá landsmönnum. Verkefnin eru mörg og ég sjálfur sé þessa fjármuni koma sér vel fyrir börnin okkar, íþrótta- og félagsstarf.“
Steinþór hótelstjóri segir að söfnunin muni halda ótrauð áfram og Hótel Keflavík mun gefa öllum fyrirtækjum sérstaka viðurkenningu sem styrkja um 500.000 krónur eða meira.
Hér getur þú lagt til þitt framlag: www.styrkja.is/okkargrindavik
Söfnunarreikningurinn „OKKAR GRINDAVÍK“ er eftirfarandi;
Reikningur: 0146-26-000001
Kennitala: 580169-1559
„Ótti og hræðsla byggist á því sem enginn veit og óvissu um framtíðina. Styrkur felst í að standa saman og styðja hvort annað,“ segir Steinþór að endingu.