Bygg
Bygg

Fréttir

Mánudagur 10. júlí 2000 kl. 12:56

Hótel í miðju hrauni

Hótel Bláa lónið er heimilislegt og notalegt hótel með 21 eins til tveggja manna herbergjum. Staðsetning hótelsins er gríðarlega skemmtileg, inni í miðju hrauni, rétt við Bláa lónið og því mikið af skemmtilegum gönguleiðum í nágrenninu. „Við leggjum mikið upp úr því að hótelgestum líði vel á hótelinu og geti verið sem mest eins og heima hjá sér“, segir Karitas Daníelsdóttir, aðstoðarhótelstjóri. „Morgunmatur er að sjálfsögðu innifalinn í gistingunni, eins og reyndar akstur til og frá Keflavíkurflugvelli. Yfir daginn erum við svo alltaf með heitt te og kaffi á könnunni“, bætir Karitas við. Herbergin eru mjög rúmgóð, öll búin sjónvarpi, síma, litlum ísskáp og baðherbergi með sturtu. Þá er heitur nuddpottur og sauna, sem standa hótelgestum til boða að vild. Matsalur hótelsins tekur 46 manns í sæti, en þar er boðið upp á kvöldverð sem matreiðslumeistari kemur og eldar fyrir gesti.
Bílakjarninn
Bílakjarninn