Bygg
Bygg

Fréttir

Hópur til Góðs styrkir börn á Suðurnesjum
Fimmtudagur 28. október 2010 kl. 14:28

Hópur til Góðs styrkir börn á Suðurnesjum

Hópur til Góðs var með Góðgætishlaðborð föstudaginn 22. október og yfirskrift þess var gefðu öðrum að borða með því að fá þér að borða! og allur ágóði þess rann til styrktar kaupa á skólamáltíðum handa börnum á Suðurnesjum. Hlaðborðið var haldið í Háskóla Íslands og aðgangseyrir var 1.000 kr - eitt verð - engin takmörk. Það mátti borða eins hverjum og einum lysti. Það söfnuðust 134.800 kr. á hlaðborðinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Styrkurinn var afhentur í Keflavík í Hátúni 26 í húsi KFUM og KFUK miðvikudaginn 28. október og stelpur á aldrinum 12-13 ára í deild KFUM og KFUK í Keflavík tóku á móti styrknum fyrir hönd Velferðarsjóðs Suðurnesja.

Þessi hópur er á vegum KFUM og KFUK á Íslandi. Meðlimir eru á öllum aldri og hópurinn er opinn öllum þeim sem vilja láta gott af sér leiða.

Verkefni hópsins verða margþætt og markmið þeirra eru að þau muni hjálpa þeim sem þurfa hjálp, aðstoð eða stuðning. Verkefnin eru ákveðin í sameiningu og einnig eru teknar sameiginlegar ákvarðanir um það hverjum hópurinn hjálpar hverju sinni.

Hópur til Góðs er á Facebook og í dag eru 86 meðlimir í hópnum.