Hópur Suðurnesjafólks útskrifast frá Háskólanum á Akureyri
Það var glæsilegur hópur sem útskrifaðist úr fjarnámi í hjúkrunarfræði, viðskiptafræði og leikskólafræði frá Háskólanum á Akureyri. Hópurinn hefur undanfarin 4 ár stundað fjárnám við HA í gegnum Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Þann 17. júní s.l. var háskólahátíð á vegum Miðstöðvar símenntunar þar sem árangri hópsins var fagnað. Það voru 23 nemendur í hjúkrunarfræði sem útskrifuðust, 2 nemendur úr viðskiptafræði og 1 leikskólakennari. Fjölmenni var við athöfnina en sú hefð hefur skapast að fjölskyldur útskriftarnema samfagni þeim og var boðið upp á kaffiveitingar að lokinni athöfn.