Hópsnesinu lokað fyrir umferð vegna flóðahættu
Vegna flóðahættu snemma í fyrramálið verður Hópsnesið lokað fyrir umferð. Búast má við lokun verði á meðan flóðahætta er og meðan viðgerð er á veg ef til þess kemur. Frá þessu er greint á vef Grindavíkurbæjar.
Hluti golfvallar Grindavíkur að Húsatóftum verður einnig lokaður af sömu ástæðu.
Veðurspár gera ráð fyrir suðvestan hvassviðri næstu daga og á þriðjudag er gert ráð fyrir sunnan og suðvestan stormi. Jafnframt gera ölduspár ráð fyrir mikilli ölduhæð og þá sérstaklega á þriðjudag. Má því reikna með aukinni sjávarhæð vegna áhlaðanda með suður og vesturströndinni. Landhelgisgæslan hvetur til aðgæslu með ströndinni og að hugað verði að skipum og bátum í höfnum.