Hópslagsmál við Stapann
				
				Kalla þurfti á lögreglu til að leysa upp hópslagsmál fyrir utan skemmtistaðinn Stapann í Njarðvík á laugardagskvöldið. Vísir.is greinir frá.
Þurfti lögregla að beita úðagasi til að róa mannskapinn sem var nokkuð æstur, en alls voru um 50-60 manns á svæðinu. Einn var færður á lögreglustöð og annar fylgdi með sjálfviljugur og endaði með því að sá síðarnefndi gisti fangageymslur.
Þá kom til slagsmála fyrir utan skemmtistaðinn Sjávarperluna í Grindavík og var einn maður færður í járnum á lögreglustöð fyrir að veitast að lögreglumanni.