Hópslagsmál í Keflavík
				
Lögreglan í Keflavík handtók í nótt fimm menn á skemmtistað í bænum vegna slagsmála við dyraverði staðarins. Þrír dyraverðir slösuðust í slagsmálunum og þurftu tveir þeirra að leita læknis.
Að sögn lögreglunnar kinnbeinsbrotnuðu þeir báðir en annar þeirra var líka nefbrotinn og fékk skurð í andlit sem í þurfti að sauma nokkur spor.
Mennirnir fimm eru allir í haldi lögreglunnar en þeir voru ölvaðir og er nú beðið eftir að hægt verði að yfirheyra þá, segir í fréttum NFS.