Hönnunar- og frumkvöðlasmiðja í Eldey í maí
Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja og MSS munu bjóða áhugasömum að taka þátt í hönnunar- og frumkvöðlasmiðju í Eldey í maí.
Markmið smiðjunnar er að þátttakendur hanni og þrói vörur er byggja á endurvinnslu eða nýtingu á hráefni úr náttúru Reykjaness. Afurðirnar verða svo kynntar á vefsíðu og markaðssettar sem mögulegar söluvörur.
Farið verður yfir stuðningsumhverfi frumkvöðla og veitt ráð m.a. varðandi styrkumsóknir og markaðssetningu.
Smiðjan verður kennd í Eldey á dagtíma, milli 9 - 15:00 og leiðbeinendur verða Daníel Sigmundsson listamaður og Linda Stefánsdóttir leikmyndahönnuður en þau standa á bak við vörulínuna Krukka sem byggir einmitt á hugmyndafræði endurvinnslu.
Skráning og upplýsingar eru hjá MSS í síma 421 7500 eða www.mss.is