Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Holtsgata 3 var verðlaunagarður Sandgerðis
Föstudagur 4. september 2015 kl. 11:06

Holtsgata 3 var verðlaunagarður Sandgerðis

Undanfarin ár hefur orðið mikil vakning á meðal bæjarbúa hvað varðar garðrækt og umhirðu húsa. Sangerðisbær veitti í gær árlegar umhverfisviðurkenningar bæjarins til eigenda þeirra eigna sem þykja snyrtilegar og vel hirtar.

Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn á setningu Sandgerðisdaga í Safnaðarheimilinu.

Holtsgata 3 var verðlaunagarðurinn í ár en eigendur hans eru Hervör Steina Þorkelsdóttir og Sigurður Magnússon.

Einnig voru aðrar viðurkenningar veittar:

Viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi húss og lóðar:
Bjarmaland 7, eigendur Salóme Kristjánsdóttir og Kári Sæbjörnsson.

Viðurkennig fyrir gróskumikin og vel við haldinn garð:
Stafnesvegur 4, eigendur Valgerður A. Bergsdóttir og Elís Björn Klemensson.

Viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi fyrirtækis:
I-Stay tjaldstæði, eigendur Hjördís Ósk Hjartardóttir og Jónas Ingason.

Vefur Sandgerisbæjar greinir frá þessu.

Public deli
Public deli