Hollywood á Suðurnesjum
Hollywood-stjörnurnar streyma til landsins vegna gerð myndarinnar Flags of Our Fathers. Í dag streymdu stjörnurnar úr flugvél Flugleiða frá San Francisco ásamt áhættuleikurum og starfsmönnum. Meðal þeirra þekktu leikara sem lentu á Suðurnesjum í dag var Jamie Bell sem dansaði sig eftirminnilega í hjörtu fólks í kvikmyndinni Billy Elliott. Hann hefur þó eitthvað stækkað því ekki var hægt að nota ljósmynd frá þeim tíma sem myndin var tekin upp til að bera kennsl á kauða. Hann sagðist ekkert vita um Ísland en hlakkaði þó mikið til að skoða land og þjóð. Um myndina hafði hann þetta að segja við Víkurfréttir nú fyrir skömmu: „Ég hef lesið mér mikið til um þessa innrás og veit töluvert um þetta en ég leik Ralf Ignatowski sem er landgönguliði í þriðju hersveit. Clint er frábær í því að segja sögur og góður leikstjóri svo ég býst ekki við öðru en að þetta verði frábært.“
Eftir að hafa leikið í Billy Elliott bar nú ekki mikið á honum Jamie Bell en hann fékk þó eitt stórt hlutverk eftir þá mynd en hann leikur í kvikmyndinni King Kong sem kemur út á þessu ári. Leikstjóri þeirrar myndar er enginn annar en Peter Jackson, sá sami og leikstýrði Lord of The Rings myndunum. Búist er við því að King Kong verði ein heitasta kvikmyndin á þessu ári og er því ljóst að frægðarsól Jamie Bell rísi á loft enn á ný.Þeir voru þó fleiri frægir sem lentu á Keflavíkurflugvelli í dag en sjálfur „aðal“ aukaleikari Hollywood’s Barry Pepper kom einnig til landsins. Hann hefur meðal annars leikið í kvikmyndunum We Were Soldiers, Knockaround Guys, The Green Mile og Saving Private Ryan. Hann sagði í samtali við Víkurfréttir að honum þætti það spennandi að koma til Íslands til að leika í kvikmynd: „Þetta er mjög spennandi verkefni og að fá að koma til Íslands til þess að vinna það er frábært,“ sagði Barry. „Ég hafði heyrt töluvert um Ísland og að þetta væri kjörinn staður fyrir upptökur á kvikmyndinni þar sem þið hafið svarta sandinn eins og á Iwo Jima.“
Það er því ljóst að mikil Hollywood-stemning er á Suðurnesjum eins og er en búist er við að fleiri stjörnur lendi á Keflavíkurflugvelli á næstu dögum en samkvæmt heimildum Víkurfrétta hefjast tökur á laugardaginn.
Myndirnar: Sú efri er af Jamie Bell sem dansaði sig til frægðar í kvikmyndinni Billy Elliott / Sú neðri er af Barry Pepper sem hefur leikið í kvikmyndum á borð við Saving Private Ryan og lék eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Knockaround Guys