Hollendingur tekinn með kókaín í Leifsstöð
Hollenskur karlmaður var tekinn í Leifsstöð í gærkvöldi með á fjórða hundrað gramma af kókaíni innvortis. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald.
Maðurinn, sem er um fimmtugt, var að koma til landsins frá Amsterdam þegar tollverðir höfðu hendur í hári hans. Lögregla annast rannsókn málsins.
Maðurinn, sem er um fimmtugt, var að koma til landsins frá Amsterdam þegar tollverðir höfðu hendur í hári hans. Lögregla annast rannsókn málsins.