Höldum ró okkar og hjálpumst að segir forsetinn
„Jörð skelfur nú á Reykjanesi sem aldrei fyrr á þessu ári. Hættustigi hefur verið lýst yfir og eldgos gæti verið í vændum nærri Grindavík, jafnvel á næstu sólarhringum. Ég hugsa hlýtt til allra íbúa þar og þeirra sem nú sinna almannavörnum og hjálp í viðlögum. Við stjórnum ekki náttúrunni en þegar vanda og vá ber að höndum stöndum við Íslendingar saman. Höldum ró okkar og hjálpumst að,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, í færslu á samfélagsmiðlum.