HSS
HSS

Fréttir

Höfuðstöðvar Geysir Green Energy opnaðar í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 25. apríl 2007 kl. 12:21

Höfuðstöðvar Geysir Green Energy opnaðar í Reykjanesbæ

Geysir Green Energy opnaði formlega í gær höfuðstöðvar sínar í Reykjanesbæ en þær eru staðsettar á efri hæð pósthússins við Hafnargötu. Geysir Green Energy er alþjóðlegt fjárfestingarfélag um sjálfbæra orkuvinnslu og er í eigu FL Group, Glitnis og VGK hönnunar. Fyrirtækið stefnir að því að fjárfesta fyrir 70 milljarða króna víða um heim í ýmsum verkefnum tengdum sjálfbærri orkuframleiðslu.
Við þetta tækifæri var þremur félögum tilkynnt um styrki frá Geysi Green Energy að einni milljón króna hvert: Íþróttafélagið Nes, Blái herinn og meistaraflokkur ÍBK í knattspyrnu. Verða styrkirnir afhentir formlega á næstu dögum.

Markmið Geysir Green Energy er m.a. að leita tækifæra í nýtingu jarðvarma og fjárfestingum í þróun og byggingu jarðvarmaorkuvera.
Við opnunina í gær voru undirritaðir samningar við ástralska fyrirtækið Geo Dynamic Power Systems um samstarf á sviði tækni sem heitir Kalina og notuð er við framleiðslu rafmagns við tiltölulega lágt hitastig á jarðhitasvæðum þar sem hefðbundnar túrbínur gagnast ekki.

Efri mynd:
Fjöldi gesta var viðstaddur formlega opnun höfuðstöðva Geysis Green Energy.

Neðri mynd:
Samningar undirritaðir við Geodynamic Power Systems, frá v. Runólfur Maack  fyrir hönd VGK Hönnunar, Ásgeir Margeirsson fyrir hönd Geysir Green Energy og Phil Hutchings fyrir hönd Geodynamics Power Systems.

VF-myndir: elg



Bílakjarninn
Bílakjarninn