Hnífstungumaðurinn fyrir herrétt?
Yfirstjórn varnarliðsins vill að varnarliðsmaðurinn sem stakk ungan Íslending í miðborg Reykjavíkur fyrr í mánuðinum komi fyrir herrétt. Herinn hefur farið fram á að taka við rannsókn málsins. Aðfaranótt fyrsta júní síðastliðinn kom til átaka milli nokkurra Íslendinga og hermanna af Keflavíkurflugvelli í miðborg Reykjavíkur. Þeim lauk með því að einn íslenskur piltur, úr Keflavík, var stunginn með hnífi í brjóst og læri. Hann slasaðist lífshættulega, en er nú á batavegi.Átta varnarliðsmenn voru handteknir í kjölfarið og játaði einn þeirra, 25 ára karl, í yfirheyrslu að vera sá er hnífnum beitti. Hann var í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. júní.
Þann fjórða júní síðastliðinn, eða fyrir níu dögum, fór lagadeild varnarliðsins á Kelavíkurflugvelli fram á það við íslensk stjórnvöld að fá að taka yfir rannsókn málsins, með það fyrir augum að draga varnarliðsmanninn fyrir herrétt.
Beiðnin var send varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins sem sendi hana áfram til dómsmálaráðuneytisins sem sendi hana til ríkissaksóknara. Þar er hún nú til umfjöllunar.
Samkvæmt heimildum fréttastofu eru menn þar á bæ ekki of hrifnir af því að láta rannsókn málsins í hendur varnarliðinu. Hins vegar geti vel verið að maðurinn verði afhentur varnarliðinu til dóms, enda vísar lagadeild varnarliðsins í ákvæði varnarsamningsins frá 1951 sem heimili slíkt framsal. Þrátt fyrir þessa heimild í samningnum mun vera fátítt að Bandaríkjaher beiti henni fyrir sig og kann það að vera vísbendingum um hversu alvarlegum augum Bandaríkjaher líti málið.
Stöð 2 greindi frá.