Hnífamaður á Skothúsinu
Aðstoðar lögreglu var óskað á aðfaranótt sunnudags við Skothúsið þar sem nokkri ungir menn voru komnir með hnífa á loft. Þegar lögreglan kom á staðinn voru mennirnir mjög æstir og einn þeirra var með hníf á sér með 10 cm blaði. Hnífamaðurinn er jafnframt grunaður um að hafa skorið sæti á leigubíl fyrr um kvöldið.