Bygg
Bygg

Fréttir

Hlýnandi veður
Mánudagur 29. nóvember 2010 kl. 08:16

Hlýnandi veður


Veðurspá fyrir Faxaflóasvæðið næsta sólarhringinn: Suðvestan og síðar vestan 5-10 og snjókoma í fyrstu en slydda eða rigning með köflum í dag. Heldur hægari vestanátt á morgun og úrkomulítið. Hiti 0 til 5 stig.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
:
Suðvestan 5-10 m/s og snjókoma en slydda eða rigning með köflum í dag. Styttir upp síðdegis, og úrkomulítið á morgun. Hiti 1 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:


Á þriðjudag og miðvikudag:
Vestlæg átt, 5-13 m/s og dálítil súld eða rigning á V-verðu landinu, en annars skýjað með köflum. Hiti 1 til 6 stig en vægt frost inn til landsins A-til.

Á fimmtudag og föstudag:

Norlæg eða breytileg átt og dálítil él. Kólnandi veður.

Á laugardag:
Lítur út fyrir norðaustanátt með éljum norðan og austantil en bjartviðri sunnanlands. Áfram kalt í veðri.

Á sunnudag:
Útlit fyrir hægviðri og heldur hlýnandi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn