Hlýjast á Garðskagavita
Klukkan 6 var hægviðri norðvestanlands en annars var norðlæg átt, yfirleitt 5-8 m/s. Norðanlands og austan var skýjað og sums staðar súld við norðurströndina en suðvestanlands var yfirleitt heiðskírt. Hiti var 3 til 9 stig, hlýjast á Garðskagavita.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðan 5-10 m/s og léttskýjað í dag en síðan norðvestlægari og skýjað. Hiti 8 til 14 stig.
Af vef Veðurstofunnar. Kortið sýnir veðrið síðdegis í dag.