HSS
HSS

Fréttir

Hlýindi næstu daga
Mánudagur 11. janúar 2010 kl. 08:26

Hlýindi næstu daga


Veðurspá næsta sólarhringinn fyrir Faxaflóasvæðið: Suðaustlæg átt, 3-8 m/s og stöku skúrir eða slydduél. Austan 5-10 á morgun og þurrt að kalla. Hiti 0 til 5 stig, en heldur kaldara í nótt og á morgun.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Suðaustan 3-5 m/s og stöku skúrir eða slydduél. Heldur hvassari austan átt síðdegis á morgun. Hiti 0 til 4 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðaustan og austan 8-13 m/s og rigning eða slydda sunnan- og austantil og hiti 0 til 5 stig. Annars hægari vindur, skýjað með köflum og víða frost.

Á fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag:
Ákveðin sunnan- og suðaustan og rigning eða slydda á sunnanverðu landinu, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hlýnar smám saman í veðri.

Bílakjarninn
Bílakjarninn