HSS
HSS

Fréttir

Hluti þaks á Hafnargötu í Keflavík fauk
Mánudagur 7. desember 2015 kl. 22:16

Hluti þaks á Hafnargötu í Keflavík fauk

Hluti af þaki húsnæðisins að Hafnargötu 8 í Keflavík, þar sem leigubílar Aðalstöðvarinnar eru með aðstöðu og var áður þvottahús Sérleyfisbifreiða Keflaíkur, fauk í óveðrinum á tíunda tímanum í kvöld. Björgunarsveitarmenn og slökkviliðsmenn Brunavarna Suðurnesja vinna að björgunarmálum á staðnum og eru m.a. með körfubíl í því verkefni.

Hluti þaksins fauk langt út á Túngötu. Að sögn Hilmar Braga, fréttastjóra VF sem hefur verið á ferðinni með björgunarsveitarmönnum í kvöld, hefur verið í nógu að snúast síðasta klukkutímann. Hann setur inn nýjar myndir af vettvangi inn á Facebook-síðu Víkurfrétta og þar getur fólk séð það nýjasta í óveðrinu í Reykjanesbæ og nágrenni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn