Bygg
Bygg

Fréttir

Hljóp tvisvar frá ógreiddu fargjaldi
Þriðjudagur 26. febrúar 2013 kl. 07:07

Hljóp tvisvar frá ógreiddu fargjaldi

Tæplega þrítugur karlmaður hefur tvisvar á skömmum tíma orðið uppvís að því að aka í leigubíl fyrir þúsundir króna og hlaupa svo burt frá ógreiddu fargjaldi. Á sunnudagsmorgun tilkynnti leigubílstjóri lögreglunni á Suðurnesjum að umræddur maður hefði stokkið út úr bílnum og hlaupið frá ógreiddu fargjaldi að upphæð á áttunda þúsund krónur. 

Tveimur dögum áður hafði sami maður tekið leigubíl. Á leið á ákvörðunarstað bað hann bílstjórann að koma við á Subway, skjótast þar inn og kaupa eitthvað fyrir sig að borða. Hann sagði veski sitt vera heima hjá sér og yrði reikningurinn gerður upp þegar þangað væri komið. Bílstjórinn gerði sem hann var beðinn, en þegar komið var á ákvörðunarstað lék maðurinn sama leikinn, stökk út úr bílnum og lét sig hverfa. Lögregla veit hver hinn „greiðslufælni“ farþegi er.

Bílakjarninn
Bílakjarninn