Hljóp í veg fyrir bifreið
Í síðustu viku var tilkynnt að ekið hafi verið á gangandi vegfaranda á Hringbraut í Keflavík á gangbrautarljósunum rétt sunnan við Tjarnargötu. Vegfarandinn var fluttur á HSS til aðhlynningar. Hafði hlotið skurð á höfði. Vegfarandinn, sem ekki notaði gangbrautarljósin, hafði hlaupið í veg fyrir bifreiðina.