Fimmtudagur 21. desember 2000 kl. 01:44
Hlaut höfuðáverka
Ekið var á konu sem var á leið yfir gangbraut á Vatnesvegi í Keflavík síðdegis sl. þriðjudag. Hún hlaut höfuðáverka og kenndi til í mjöðm. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðsl konunnar eru. Konan var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.