Hlaut augnskaða á gamlárskvöld
Pólskur karlmaður hlaut augnskaða og var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Komið var með manninn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á tólfta tímanum í gærkvöldi. Þangað var óskað eftir sjúkrabíl til að flytja manninn áfram á augndeild Landsspítalans.
Ekki liggja fyrir skýrslur hjá viðbragðaðilum hér syðra sem segja hversu alvarlegt slysið var.
Meðfylgjandi mynd var tekin í Reykjanesbæ í gærkvöldi og tengist ekki fréttinni beint. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi