Hlaupahópur Röggu Ragg nálgast milljón
Fjölskylda og vinir hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Ljóssins
Víkurfréttir vöktu í síðustu viku athygli á söfnun fyrir Ljósið sem hlaupahópur Röggu Ragg stendur fyrir í tilefni Reykjavíkurmaraþons sem fram fer 24. ágúst. Hlaupið er haldið árlega af Íslandsbanka á Menningarnótt í Reykjavík. Þátttakendur safna fyrir ákveðið góðgerðarfélag og getur fólk styrkt sérstakan hlaupara eða hlaupahóp með því að fara inn á www.hlaupastyrkur.is, finna þar sinn hlaupara eða hlaupahóp og leggja inn peningaupphæð að vild.
Eins og staðan er í dag er sá hlaupahópur sem safnað hefur lang hæstu upphæðinni Hlaupahópur Röggu Ragg sem stofnaður var af Björk Þorsteinsdóttur og Guðmundi Jens Guðmundssyni. Hópurinn sem samanstendur af fjölskyldu Ragnheiðar Ragnarsdóttur sem og vinum og kunningjum, hleypur til styrktar Ljóssins sem er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra.
Meðlimir hópsins vilja hlaupa til stuðnings baráttu Ragnheiðar við krabbamein og á að endurspegla það þakklæti sem hún og fjölskylda hennar bera til þess góða og þarfa starfs sem fer fram í Ljósinu.
Markmið hópsins var að safna 500.000 kr. og þegar Víkurfréttir birtu fréttir af hlaupahópnum á vf.is í síðustu viku höfðu safnast 263.500 kr. Nú er talan komin upp í 898.000 kr.
Þeir sem vilja styrkja meðlimi hlaupahópsins geta gert það með því að fara inn á hlaupastyrkur.is og fundið þar Hlaupahóp Röggu Ragg.