Hláka og fljúgandi hálka yfirvofandi
Enn ein stormlægðin stefnir nú á landið og nær veðurhamurinn hámarki síðdegis á morgun segir Einar Sveinbjörnsson hjá Veðurvaktinni í tilkynningu frá VÍS. „Rigning verður með roki eða jafnvel ofsaveðri og snöggri leysingu í 5°C hita á láglendi. Þar sem talsverður nýlegur og auðleystur snjór er víða yfir og klaki undir má búast við varasömum aðstæðum.“
Einar segir að reikna megi með þó nokkrum vatnsaga þegar snögghláni og rigni suðvestan- og vestanlands á morgun, allt frá Mýrdal vestur á Snæfellsnes. Ekki sé búist við að hlákan nái að neinu gagni upp fyrir 200-300 metra hæð. Á heiðum er hætt við að færð spillist með skafrenningi og ofankomu og því mikilvægt að kynna sér færð og veður.
Veðurhæðin verður mest síðdegis þegar umferðin er þyngst. Ætla má að rásir og holur sem víða hafa myndast í götum fyllist af vatni. Hætt er við að bílar fljóti upp eða gusi yfir aðra bíla og birgi bílstjórum sýn. Því er mikilvægt að reyna eftir megni að aka ekki í miðjum vatnsflauminum og draga vel úr hraða. Bæði gangandi og akandi vegfarendur þurfa að gæta sín á mjög mikilli hálku, sér í lagi þar sem klaki er undir snjónum, til að mynda í íbúðargötum og á göngustígum.
Áður en veðrið skellur á er nauðsynlegt að húsráðendur íbúðar- og atvinnuhúsnæðis hreinsi frá niðurföllum, moki snjó af svölum og gæti þess að vatn eigi greiða leið að niðurföllum. Þá er skynsamlegt að leggja ökutækjum ekki beint undir þökum þar sem hætta er á að snjór falli niður og skemmi þau.