Hjúkrunarfræðinám við HA kynnt hjá MSS

Kynningarfundur um fjarnám í hjúkrunarfræði verður haldinn í Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum föstudaginn 28. janúar kl. 14:00. Árún K. Sigurðardóttir brautarstjóri hjúkrunardeildar HA mun koma og kynna námið. Einnig munu nemendur sem útskrifuðust sumarið 2004 segja frá sinni reynslu með fjarnámið. Allir sem hafa áhuga eru hvattir til að mæta í Miðstöðina að Skólavegi 1.
Umsóknarfrestur um fjarnám í hjúkrunarfræði er til 1. mars 2005.