Hjólsög og fleiri tækjum stolið
Tvö innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum í fyrradag. Í öðru tilvikinu var um að ræða innbrot í nýbyggingu í Njarðvík. Þaðan hafði verið stolið loftpressu, hjólsög, höggborvél og fleiri tækjum.
Í hinu tilvikinu var brotist inn á verkstæði í Keflavík og þaðan stolið kveikjuláslyklum af átta bifreiðum, tölvu og tækjabúnaði.
Málin eru til rannsóknar hjá lögreglu.