Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Hjólbörutónleikar endurteknir á Ljósanótt
Mánudagur 22. ágúst 2016 kl. 10:00

Hjólbörutónleikar endurteknir á Ljósanótt

- þetta verður alls ekki dannað

Hljólbörutónleikarnir sem slógu í gegn á síðustu Ljósanótt verða endurteknir í Keflavíkurkirkju í ár en þar munu gleðigjafarnir Arnór B. Vilbergsson, Elmar Þór Hauksson og Kjartan Már Kjartansson bregða á leik og taka við óskalögum tónleikagesta.

Flutt verða lög af rúmlega 100 laga lista samkvæmt óskum tónleikagesta og má því segja að efnisskráin verði til á staðnum. Hvert lag hefur númer og sá sem galar hæst getur átt von á því að fá lagið sitt flutt.

Public deli
Public deli

Yfirleitt eru tónleikar í kirkjum býsna dannað fyrirbæri, en þessir voru það ekki

Að sögn Arnórs sem er organisti í Keflavíkurkirkju komu hjólbörutónleikarnir í fyrra mikið á óvart.
„Þeir tókust gríðarlega vel og var kirkjan yfirfull mjög snemma. Stemmningin var skemmtileg en það má segja að ákveðin spenna og ánægja hafi einkennt viðburðinn. Yfirleitt eru tónleikar í kirkjum býsna dannað fyrirbæri, en þessir voru það ekki," segir hann og hlær.

„Fólk gerði hvað sem var til að fá sitt lag leikið og virtist vera vel með á nótunum um hvað málið snérist. Ef þú ekki lætur í þér heyra hvaða lag þú vilt, færðu að öllum líkindum ekki að heyra það. Það eru jú, vel yfir 100 lög á listanum."

Að sögn Arnórs eru þeir búnir að uppfæra lagalistann og hjólbörurnar.

„Við verðum að þessu sinni með 100kg 801 millarco börur."

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 fimmtudaginn 1. september og er miðaverð kr. 1500. Miðasala verður við innganginn.