Fréttir

Hjólaði á bíl
Miðvikudagur 29. júní 2005 kl. 21:31

Hjólaði á bíl

Ungur piltur á reiðhjóli varð fyrir því í dag að hjóla utan í bifreið í Grindavík.  Engin slys urðu á piltinum, en einhverjar skemmdir urðu á bifreiðinni.

Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut.  Sá er ók hraðast var á 127 km hraða, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst.

Þá var ökumaður kærður fyrir að hafa ekki bílbeltið spennt og að vera með útrunnið ökuskírteini.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024