HSS
HSS

Fréttir

Hjólað milli kirkna 6.júlí
Mánudagur 30. júní 2008 kl. 14:55

Hjólað milli kirkna 6.júlí

Eiríksreið: Sunnudaginn 6. júlí verður hjólað á milli kirkna á utanverðum Suðurnesjum.

Viðburðurinn er haldinn til minningar um sr. Eirík Brynjólfsson sem var prestur að Útskálum 1928-1952. Sr. Eiríkur var mikill hjólagarpur og hjólaði reglulega um Reykjanesskagann, sóknarbörnum sínum til stuðnings og þjónustu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fyrirhugað er að gera ferð þess að árlegum viðburði.

kl. 10:00 Keflavíkurkirkja. Hópurinn frá Reykjanesbæ leggur af stað frá kirkjunni.
kl. 11:00 Útskálar. Lesið guðspjall. Farið yfir sögu kirkjunnar og endurbótum lýst.
kl. 13:00 Hvalsneskirkja. Fjallað um sálmaskáldið Hallgrím Pétursson og skoðuð steinhellan í kirkjunni. Stutt hugleiðing flutt.
kl. 15:00 Kirkjuvogskirkja. Helgistund. Nesti snætt. Saga kirkjunnar sögð í stuttu máli.
kl. 16:30 Komið aftur í Keflavíkurkirkju.
kl. 17:30 Komið aftur að Útskálum

Allir eru velkomnir í ferðina. Fólk getur mætt í kirkjunnar á tilsettum tímum, tekið þátt í helgihaldinu og hjólað yfir í næstu kirkju eða verið með allan daginn.

Af www.keflavikurkirkja.is

Mynd: Kirkjuvogskirkja í Höfnum.