Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hjólað í vinnuna haldið í sextánda sinn
Mánudagur 7. maí 2018 kl. 10:03

Hjólað í vinnuna haldið í sextánda sinn

Nú stendur yfir átakið Hjólað í vinnuna en það er Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem stendur fyrir því en því lýkur þann 22. maí.

Verkefnið höfðar til starfsmanna á vinnustöðum landsins og hefur þátttakan margfaldast á þeim fimmtán árum sem liðin eru frá því að verkefnið fór af stað. Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta annan virkan ferðamáta til og frá vinnu. Keppt er um fjölda þátttökudaga en lið geta jafnframt skráð sig í kílómetrakeppnina þar sem keppt er um heildarfjölda kílómetra. Landsmenn hafa tekið átakinu gríðarlega vel frá upphafi og verkefnið skapað alla jafna góða stemningu á vinnustöðum landsins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024