Hjarta bæjarbúa slær með bænum okkar - segir Fannar
„Mig langar því að biðja Grindvíkinga að fara að öllu með gát, sérstaklega fjölskyldur með ung börn. Starfsfólk bæjarins mun áfram gera sitt allra besta til að fylla upp í sprungur og griða af þær sprungur sem finnast, en þeirri vinnu er enn ekki lokið,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur í pistli til bæjarbúa sem hann sendi eftir að það var gefið út að þeir gætu farið til síns heima fyrir jólin og gist.
Fannar bendir þó bæjarbúum á ýmsa óvissu og hvetur þá að fara að öllu með gát. Hér kemur pistillinn í heild:
Kæru Grindvíkingar,
Nú eru jólin rétt handa við hornið og við Grindvíkingar enn í talsverðri óvissu. Mig langar að byrja á að hafa orð á því hversu mikið ég hef dáðst að þeirri þrautseigju sem ég hef orðið vitni að hjá bæjarbúum síðustu vikur. Einnig þann mikla skilning sem þið hafið sýnt okkur hjá bænum og á sama tíma þakka öllu ég starfsfólki bæjarins fyrir að hafa unnið dag og nótt frá því rýmingin hófst.
Fyrr í dag var neyðarstig almannavarna fært niður á hættustig, en engin sjáanleg virkni er í eldgosinu. Í nýju hættumati frá Veðurstofu Íslands kemur fram að landris sé við Svartsengi og rísi land þar hraðar en í fyrri eldgosum í Sundhnúkagígum.
Í kjölfarið ákvað lögreglustjórinn á Suðurnesjum að aflétta öllum rýmingum í Grindavík frá og með laugardeginum 23. desember sem þýðir að þá mega bæjarbúar vera í bænum allan sólahringinn. Götur og gangstéttar eru öruggar nema þær séu afgirtar. Öll önnur svæði í bænum eru óyfirfarin og því ættu börn og fullorðnir ekki að vera á ferðinni utan gatna og gangstétta, þar sem sprungur geta leynst víða.
Það er því miður talsvert langt í að bærinn sé tilbúinn til að starfa aftur með hefðbundnum hætti. Miklar viðgerðir eru framundan víða og til að skólastarf geti hafist með eðlilegum hætti þarf að gera við talsverðar skemmdir sem orðið hafa á skólabyggingum og á íþróttamannvirkjum.
Mig langar því að biðja Grindvíkinga að fara að öllu með gát, sérstaklega fjölskyldur með ung börn. Starfsfólk bæjarins mun áfram gera sitt allra besta til að fylla upp í sprungur og griða af þær sprungur sem finnast, en þeirri vinnu er enn ekki lokið.
Á milli jóla og nýárs verður opið í þjónustumiðstöðinni fyrir Grindvíkinga í Tollhúsinu, Tryggvagötu 19 í Reykjavík alla virka daga milli 10 og 17. Mig langar að hvetja fólk til að nýta sér þá þjónustu sem þar er í boði og ekki síst til að koma og hitta aðra Grindvíkinga. Þá er hægt að koma eða panta tíma til að fá sálfélagslegan stuðning frá fagfólki Rauða kross Íslands.
Allar upplýsingar um Þjónustumiðstöðina má fá með því að hringja í síma 8552787 eða senda tölvupóst á [email protected]
Þá má finna góð bjargráð ef vanlíðan sækir inn á Island.is.
En þó að Grindvíkingar haldi jólin víða um land þetta árið, þá veit ég að hjarta bæjarbúa slær með bænum okkar og áður en langt um líður verðum við komin heim á ný.
Með ósk um gleðileg jól,
Fannar