Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hjálmar bjartasta vonin
Fimmtudagur 3. febrúar 2005 kl. 11:04

Hjálmar bjartasta vonin

Reggíhljómsveitin Hjálmar, sem að hluta til kemur frá Suðurnesjum, fengu eftirsóknaverðar viðurkenningar á íslensku tónlistarverðlaununum sem veitt voru í gærkvöldi. Hljómsveitin þótti hafa gefið út bestu rokkplötuna á árinu ásamt því að vera valin bjartasta vonin í flokknum popp- og rokktónlist. Plata Hjálma, Hljóðlega af stað, hefur selst vel en hún nálgast nú óðfluga 2000 eintök. Geimsteinn, útgáfufélag Rúnars Júlíussonar, gefur þá út.

Tónlistarmaðurinn Mugison sópaði til sín verðlaununum en hann fékk alls þrenn verðlaun. Mugison sigraði í flokkunum besta poppplatan, besta lagið, besta plötuumslag ásamt því að vera kosinn vinsælasti flytjandinn.

Sigurvegararnir voru eftirfarandi:

POPP OG ROKKFLOKKUR:
  Poppplata ársins
  Mugimama, Is This Monkeymusic? - Mugison

  Rokkplata ársins
  Hljóðlega af stað - Hjálmar

  Dægurtónlist, plata ársins
  Vetrarljóð - Ragnheiður Gröndal

  Söngvari ársins
  Páll Rósinkrans

  Söngkona ársins
  Ragnheiður Gröndal

  Flytjandi ársins
  Jagúar

  Lag ársins
  Murr Murr - Mugison

  Bjartasta vonin
  Hjálmar

SÍGILD TÓNLIST:
  Tónverk ársins
  Sinfónía eftir Þórð Magnússon

  Plata ársins
  Verk fyrir selló og píanó - Bryndís Halla Gylfadóttir og Edda Erlendsdóttir

  Flytjandi ársins
  Bryndís Halla Gylfadóttir

  Bjartasta vonin
  Víkingur Heiðar Ólafsson

JAZZFLOKKUR:
  Plata ársins
  Dansaðu fíflið þitt dansaðu! - Sammi & Tómas R. Stórsveitin Jagúar

  Lag ársins
  Ástin eftir Tómas R. Einarsson og Ólafíu Hrönn Jónsdóttur

  Flytjandi
  Samúel Jón Samúelsson og stórsveitin Jagúar

ÝMIS TÓNLIST:
  Hljómplata ársins
  Sálmar - Ellen Kristjánsdóttir

ÖNNUR VERÐLAUN:
  Umslag ársins
  Mugison - Mugimama, Is This Monkey Music?
  Hönnun: Ragnar Kjartansson, Aðalgeir Arnar Jónsson, Mugison og Rúna.

  Myndband ársins
  Oceania - Björk
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024