Bygg
Bygg

Fréttir

Hjallastefnan tekur við Sólborg í Sandgerði
Laugardagur 26. maí 2012 kl. 12:38

Hjallastefnan tekur við Sólborg í Sandgerði


Samþykkt var á síðasta fundi bæjarstjórnar Sandgerðis að ganga til samninga við Hjallastefnuna ehf. um rekstur leikskólans Sólborgar í Sandgerði næstu þrjú árin. Ákvörðunin er í samræmi við niðurstöðu starfshóps sem skipaður var af bæjarráði 27. mars síðastliðinn og samþykkt fræðsluráðs.

Boðað er til kynningarfundar fyrir foreldra og almenning um Hjallastefnuna þriðjudaginn 29. maí nk. Fundurinn fer fram í Vörðunni, Miðnestorgi kl. 20:30.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Margrét Pála Ólafsdóttir frumkvöðull og fræðslustjóri Hjallastefnunnar mun kynna stefnuna.

Hjallastefnan á sér langa og farsæla sögu. Faglegur metnaður er mikill og reksturinn gengur vel. Hugmyndafræði og stefnuyfirlýsing Hjallastefnunnar byggist á sex meginreglum en þær eru grundvöllurinn að þeirri lífssýn og mannskilningi sem allt starfsfólk sameinast um. Það er því von bæjarstjórnar að þetta samstarf geti orðið til þess að efla enn frekar það góða starf sem fram hefur farið á leikskólanun Sólborgu.

Foreldrar og almenningur eru hvött til að sækja fundinn.