Atnorth
Atnorth

Fréttir

Hiti 5 til 12 stig
Miðvikudagur 31. mars 2004 kl. 09:47

Hiti 5 til 12 stig

Klukkan 6 var suðaustlæg átt, víða 8-15 m/s, en mun hægari breytileg átt suðvestan- og norðvestanlands. Þokusúld var suðaustantil, skýjað norðaustantil, en slydda eða snjókoma vestantil. Hiti 0 til 10 stig, kaldast á Vesturlandi, en hlýjast á Seyðisfirði.

Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Fremur hæg breytileg átt vestantil á landinu og snjókoma eða slydda með köflum, en rigning og súld í nótt og á morgun. Suðaustan 8-13 m/s austantil, en hægari í kvöld. Rigning eða þokusúld með köflum suðaustan- og austanlands, en skýjað og þurrt norðaustanlands. Hiti yfirleitt 5 til 12 stig, en 0 til 5 stig vestanlands fram á nótt.
Bílakjarninn
Bílakjarninn