Hiti 5 til 10 stig

Yfirlit:
300 km NV af Jan Mayen er 990 mb lægð sem fer ANA, en við Skotland er víðáttumikil 1038 mb hæð sem þokast V.
Veðurhorfur á landinu:
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Minnkandi suðvestanátt, víða 5-10 m/s síðdegis. Léttskýjað á austanverðu landinu en smáskúrir vestantil. Sunnan 5-13 og dálítil væta á morgun, en hægari og þurrt austantil. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast A-lands.
Veðurhorfur við Faxaflóa til kl. 18 á morgun:
Suðvestan 5-10 m/s og stöku skúrir. Suðlægari á morgun og súld eða dálítil rigning. Hiti 5 til 10 stig.