Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Fréttir

Hiti 12-17 stig í dag
Laugardagur 2. september 2006 kl. 10:29

Hiti 12-17 stig í dag

Í morgun var norðaustanátt, víða 5-10 m/s, en 10-13 norðvestanlands. Skýjað var að mestu og dálítil rigning eða þokusúld norðan- og austanlands. Hiti var 6 til 13 stig, hlýjast suðvestanlands.


Um 500 km suður af Hornafirði er víðáttumikil 989 mb lægð, sem hreyfist lítið, en yfir Grænlandi er 1021 mb hæðarhryggur.


Faxaflói: Norðaustan 5-10 m/s og skýjað með köflum. Hiti 12 til 17 stig að deginum.


Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Norðaustan 5-10 m/s, en hvassara norðvestan til. Rigning norðan- og austanlands, en annars bjart með köflum. Hægara síðdegis á morgun og styttir víða upp. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast suðvestanlands.

Bílakjarninn
Bílakjarninn