Hiti 10 til 18 stig
Klukkan 9 var norðlæg vindátt, víða 3-8 m/s. Bjartviðri suðvestanlands, annars skýjað og allvíða súld eða rigning norðanlands. Hiti var 7 til 13 stig, hlýjast suðvestantil.Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðaustlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og bjartviðri að mestu. Gengur í suðaustan 8-13 í nótt með rigningu. Hiti 10 til 18 stig. Snýst í suðvestan og vestan 5-10 með skúrum síðdegis á morgun.
Af vef Veðurstofunnar. Kortið sýnir veðrið síðdegis í dag.






