Hiti 0 til 5 stig
Norðlæg átt, 3-8 m/s og léttskýjað að mestu við Faxaflóa í dag. Hiti 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Hæg norðaustlæg átt og léttskýjað, en norðan 5-10 seint í kvöld. Hiti 1 til 4 stig, en um frostmark í nótt.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag: Vaxandi suðaustanátt, 10-18 m/s S- og V-lands með morgninum og rigning, en hægari og þurrt norðaustantil. Heldur hvassara síðdegis. Hlýnandi veður.
Á fimmtudag: Sunnan hvassviðri og rigning, en úrkomulítið norðaustantil. Dregur úr vindi þegar líður á daginn. Milt í veðri.
Á föstudag og laugardag: Suðlæg átt og rigning eða skúrir S- og V-lands en þurrt að kalla norðan- og austanlands. Heldur kólnandi.
Á sunnudag: Útlit fyrir norðaustanátt með ofankomu fyrir norðan, en styttir upp að mestu syðra. Áfram kólnandi veður.