Hitaveitan: Hagnaður síðasta árs tæpur 1.6 milljarður

Samkvæmt rekstrarreikningi, sem kynntur var á aðalfundi HS fyrir helgi, námu rekstrartekjur félagsins tæpum 4.7 milljörðum. Eignir eru upp á tæpa 25 milljarða og er eigið fé upp á 13.8 milljarða, sem er 56% af heildarfjármagni.
Aðalfundur HS samþykkti að á árinu 2006 yrði greiddur arður til hluthafa, alls 420 milljónir.
Heildartekjur félagsins á þessu ári eru áætlaðar ríflega 5.7 milljarðar, samkvæmt fjárhagsáætlun, og er reiknað með að hagnaður verði á bilinu 12 - 12.5 milljarðar.
Mynd: Frá aðalfundi Hitaveitu Suðurnesja fyrir helgi. VF-mynd:elg