Hitaveita Suðurnesja hf.: Bjóða 6% afslátt af núgildandi orkugjaldi

Samkvæmt upplýsingum Hitaveitu Suðurnesja hf. (HS hf.) geta viðskiptavinir óskað eftir breytingum frá áramótum en þær munu þó af tæknilegum ástæðum ekki koma til framkvæmda fyrr en 1. júní 2006. Það er því rétt fyrir raforkunotendur að skoða þessi mál vandlega frá öllum hliðum og láta ekki gylliboð villa sér sýn.
Það er ekki alltaf einfalt að bera saman verðskrár fyrir raforku þar sem kann að þurfa að taka tillit til mismunandi orkugjalda, fastagjalda, aflgjalda, mælaleigu, seðilgjalda o.s.fr. Það er þó tiltölulega auðvelt að bera saman verðskrá fyrir almenna notkun og um árabil hefur HS hf. verið með lægsta raforkuverðið í landinu. Íþyngjandi breytingar á raforkulögum með jöfnun flutningskostnaðar o.fl., sem HS hf. barðist þó ötullega gegn, leiddu til óhjákvæmilegra verðhækkana um síðustu áramót. Það hefur verið eindregin stefna HS hf að vera samt sem áður með mjög samkeppnishæft orkuverð og við það hefur verið og verður staðið.
Stjórn Hitaveitu Suðurnesja hf. ákvað á fundi sínum 16. desember sl. að raforkuverð samkvæmt almennum taxta yrði 3,25 kr/kWst frá 1. janúar 2006 að telja fyrir núverandi viðskiptavini, án sérstaks samnings þar um og nýja aðila sem gera samning um orkukaup til tveggja ára. Í þessu felst 6% afsláttur frá núgildandi orkugjaldi fyrir þessa viðskiptavini. Endanlegt heildar orkuverð er ekki ljóst þar sem gjaldskrár fyrir dreifingu liggja enn ekki fyrir.
Í bréfinu til viðskiptavina segir að Hitaveita Suðurnesja hf. vilji nota tækifærið og benda viðskiptavinum sínum á að nýta sér möguleika á rafrænum viðskiptum, boð- eða beingreiðslum o.fl. Með því fellur niður seðilgjald en með því næst umtalsverður sparnaður sem getur verið meiri en sem svarar til mismun raforkuverðs milli einstakra söluaðila.
Þá getur verið athugandi, þar sem viðskiptavinir hafa fleiri en einn notkunarstað, eiga t.d. sumarbústað, að vera með raforkukaupin á einum stað.
HS hf. bendir viðskiptavinum sínum á að hafa samband við þjónustuver fyrirtækisins í síma 422 5200 eða leita upplýsinga á heimasíðu fyrirtækisins www.hs.is. Þá er unnt að senda fyrirspurnir og/ eða óska eftir viðskiptum á [email protected].
Mynd: Úr Reykjanesvirkjun í dag.