Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 16. maí 2001 kl. 09:16

Hitaveita Suðurnesja festir kaup á IP símakerfi

Hitaveita Suðurnesja hf undirritaði á þriðjudag samning við Tæknival um kaup á IP-símkerfi fyrir fyrirtækið. Hitaveitan er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem fjárfestir í kerfi af þessu tagi en það kemur í stað hefðbundnar símstöðvar að nokkru leyti.
Kerfið hefur í för með sér mikla hagræðingu fyrir fyritæki að sögn Ólafs Jóhanns Ólafssonar, deildarstjóra á Kjarnasviði Tæknivals. Í kerfinu þarf ekki að gera ráð fyrir lögnum vegna síma þar sem IP-símtækni er hluti af tölvulögnum, síminn er partur af tölvukerfinu. Auk þess er kerfið mjög hreyfanlegt og hægt að bæta við kerfið þegar það hentar. Forsvarsmenn Hitaveitu Suðurnesja segja ástæðan fyrir vali á þessu kerfi vera þá að kerfið nýtist fyrirtækinu vel. Starfstöðvar Hitaveitunnar í Reykjanesbæ, Hafnarfirði og Svartsengi verða þannig að einu kerfi sem ekki er bundið við ákveðinn stað. Kerfið býður auk þess upp á betri gæði í tali og tengingum. Kerfið verður sett upp um næstu mánaðarmót en uppsetning þess tekur ekki langan tíma. Til að byrja með verður gamla kerfið ennþá til staðar á meðan starfsmenn læra á nýja kerfið.
Eins og áður sagði er Hitaveita Suðurnesja hf fyrsta fyrirtækið á Íslandi til að nýta sér þessa tækni og er fjallað um samninginn á heimasíðu Cisco fyrirtækisins sem sér um framleiðslu búnaðsins.
Bílakjarninn
Bílakjarninn