Hilmar Egill Sveinbjörnsson ráðinn skólastjóri Stóru-Vogaskóla
Hilmar Egill Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn skólastjóri Stóru-Vogaskóla. Starfið var auglýst laust til umsóknar fyrr í vetur. Leitað var til ráðningarþjónustu Hagvangs, sem sá um ráðningarferlið í samráði við mannauðsráðgjafa Sveitarfélagsins Voga. Alls bárust þrjár umsóknir um starf skólastjóra en umsækjendur um starfið voru eftirtaldir:
Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir, umsjónarkennari í Vopnafjarðarskóla. Hilmar Egill Sveinbjörnsson, aðstoðarskólastjóri Stóru-Vogaskóla. Vera Ósk Steinsen, tónlistarkennari í Grunnskóla Hólmavíkur.
Rætt var við alla umsækjendur sem sóttu um starfið. Að loknum viðtölum og yfirferð gagna var Hilmar Egill Sveinbjörnsson metinn hæfastur umsækjenda til að gegna starfinu. Niðurstaðan var kynnt á fundi bæjarráð 16. febrúar síðastliðinn. Bæjarráð lagði samhljóða til við bæjarstjórn að leggja til að Hilmar Egill yrði ráðinn sem skólastjóri. Bæjarstjórn kom saman 24. febrúar þar sem tillagan var samþykkt með sex atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.