Bygg
Bygg

Fréttir

Hildur Vala syngur á Símadögum
Föstudagur 10. júní 2005 kl. 19:20

Hildur Vala syngur á Símadögum

Mikill erill var við verslun Símans í dag þar sem Símadagar voru haldir hátíðlegir. Hátíðin stendur fram á morgun þegar hún nær hámarki með tónleikum Hildar Völu Idol-stjörnu.

Þegar ljósmyndari VF átti leið hjá í dag var sirkusstemmning við verslunina þar sem furðuverur af öllum stærðum og gerðum skemmtu gestum og gangandi með uppátækjum sínum.

Á morgun hefjast línuskautanámskeið og hokkíkeppni kl. 11 í fyrramálið og Hildur Vala syngur ásamt hljómsveitinni Ritz kl. 14.

VF-mynd/Þorgils

Bílakjarninn
Bílakjarninn