Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Hildur markaðsstjóri Bioeffect
Hildur Ársælsdóttir.
Þriðjudagur 25. október 2016 kl. 09:38

Hildur markaðsstjóri Bioeffect

Hildur Ársælsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Bioeffect, sem er dótturfyrirtæki Orf Líftækni. Viðskiptablaðið greinir frá.

Hildur starfaði síðast hjá snyrtivörurisanum L'Oréal í Kaupmannahöfn, en síðustu tíu árin hefur hún starfað fyrir ýmis þekkt merki eins og Helena Rubenstein, Urban Decay, NYX, La Roche Posay, Ole Henriksen og Redken í Kaupmannahöfn, París og Los Angeles.

Hildur hefur stundað nám á Íslandi, í Danmörku, Bandaríkjunum og Frakklandi, en hún lauk námi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og námi í vöruþróun og markaðsmálum frá F.I.D.M. í Los Angeles.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024