Hestur fældist vegna torfæruhjóls
Kona féll af hestbaki við Mánagrundarsvæðið í gærdag þegar hestur hennar fældist. Óhappið bar að með þeim hætti að konan var á ferð á hrossi sínu eftir reiðstíg þegar torfæruhjóli var ekið á mikilli ferð fram hjá þeim. Hesturinn fældist sem fyrr sagði með ofangreindum afleiðingum. Konan fann fyrir eymslum í baki og hálsi eftir byltuna og ætlaði að leita sér læknisaðstoðar ef þörf krefði.

 
	
				

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				