Hestakona og kútmagar í Víkurfréttum vikunnar
Víkurfréttir eru komnar út í rafrænni útgáfu og má nálgast blaðið hér að neðan. Prentaðri útgáfu verður dreift á morgun, miðvikudag, og verður blaðið komið á alla okkar dreifingarstaði fyrir hádegi.
Hestakonan Glódís Líf Gunnarsdóttir er í viðtali við Víkurfréttir í þessari viku. Hún ver öllum sínum stundum í hesthúsum fjölskyldunnar á Mánagrund og stefnir á nám í hestafræðum á Hólum í Hjaltadal. Glódís er einnig í Suðurnesjamagasíni á fimmtudagskvöld.
Í blaði vikunnar kíkjum við einnig á fyrsta stóra mannamótið í Grindavík frá því öllu var skellt í lás þegar Covid-faraldurinn skall á fyrir tveimur árum. Um er að ræða kútmagakvöld Lionsklúbbs Grindavíkur. Við sýnum ykkur myndir frá skemmtuninni í blaðinu. Í Suðurnesjamagasíni verður einnig innslag með viðtölum og myndum frá samkomunni.
Það er ljóst að Keflavík mun ekki vera með í úrslitakeppni kvenna á yfirstandandi Íslandsmóti í körfuknattleik. Það er eitthvað sem Keflvíkingar eiga ekki að venjast enda kvennaboltinn sterkur hjá félaginu segir Jón Halldór Eðvaldsson, eða Jonni eins og hann er oftast kallaður, sem þjálfar kvennalið Keflavíkur og mun aðstoða karlaliðið út leiktíðina. Hann er í viðtali við Víkurfréttir í þessari viku.
Fastir liðir eins og FS-ingur vikunnar, Ung(menni) vikunnar, Lokaorð, aflafréttir og flottar myndir frá Jóni Steinari Sæmundssyni.