HERTZ MÆTT TIL LEIKS Á VARNARSVÆÐINU
Bílaleigurisinn Hertz hefur gert umboðssamning við Helgu Ragnarsdóttur um þjónustu við varnarsvæðið á bílaleigubifreiðum af öllum gerðum og stærðum. Hjálmar Pétursson, yfirmaður Hertz á Íslandi, sagði varnarstöðina vera áttunda afgreiðslustað Hertz hérlendis.„Ég held að varnarliðsmenn eigi eftir að taka Hertz opnum örmum enda fyrirtæki sem þeir þekkja og treysta“ sagði Helga sem jafnframt tryggir bifreiðar varnarliðsmanna f.h. V.Í.S í starfstöð sinni í gömlu flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli.