Herþyrlur fara 15. september
Þyrlur varnarliðsins fljúga af landi brott hinn 15. september, en herinn hafnaði beiðni Landhelgisgæzlu Íslands (LHG) um að þyrlurnar yrðu til taks hér á landi til 1. október, þegar fyrsta leiguþyrla gæslunnar kemur hingað til lands. Morgunblaðið greindi frá þessu í gær.
Landhelgisgæzlan mun fá fyrstu leiguþyrlu sína afhenta 1. október. Sú þyrla er sambærileg við TF-LIF, stærri þyrlu Gæzlunnar. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar sagðist ekk óttast að alvarlegt ástand verði ef önnur hvor þyrla gæslunnar bilar áður en leiguþyrlan kemur. Ef óvænt ástand komi upp megi reikna með aðstoð frá Norðmönnum til að brúa bilið. Um það sé munnlegt samkomulag.
"Við óskuðum eftir því að þyrlurnar yrðu hér til 1. október, og reiknuðum með að þeir [varnarliðið] samþykktu það, en við fengum upplýsingar um það síðastliðinn mánudag að þeir myndu ljúka sinni vakt klukkan 16 föstudaginn 15. september," segir Georg Kr. Lárusson, forstjóri LHG.
www.mbl.is